 |
 |
 |
 |
 |
|
Sunday, April 02, 2006
|
Things to do:
-Taka til í herberginu
-Taka til í fataskápnum
-Taka til í náminu
-Taka til í félagslegum samskiptum
-Taka til í huganum
-Taka til í heilanum
-Taka til í tilfinningum
Nóg í bili.. Úff hvað þetta á eftir að verða erfitt.. :P
System of a down - Prison song |
|
|
Posted at 05:46 pm by
Permalink
Monday, March 27, 2006
OMFG! MEIRI TÍMAEYÐSLA!!!
Haha.. ég nenni í rauninni enganvegin að blogga :D En allavega..
Helgin var skemmtileg.. meira að segja svolítið yndisleg á köflum. :) Byrjaði á feitu djammi um föstudagsnóttina þrjú partý og skemmtilegheit og var svo lítið sem ekkert sofið. Kom svo heim með Kristjönu um hálf fjögurleitið daginn eftir með bombu í annarri og magic í hinni. Var þá ekki húsið fullt af ömmum, frænkum og fullt af litlum krökkum.:P Gamanaðessu. Reyndi að líta sem ferskust út með því að brosa í gegnum bauganna.. held að það hafi ekki gengið neitt framúrskarandi vel. Heh.. En sem betur fer slapp ég þaðan klukkan fimm til að fara upp í loftkastala þar sem að við sýndum líka þessa dúndursýningu!! :D
Æ fokk, ég nenni ekki meir.. :P
En HEY! meiri tímaeyðsla! Tekin af blogginu hjá Laufeyju og Kristínu (blog.central.is/-online-)
Hefur þú einhvern tíma...
(x) reykt sígarettu ( ) klesst bíl vinar/vinkonu ( ) stolið bíl (?) verið ástfangin/n ( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu ( ) verið rekin/n ( ) lent í slagsmálum ( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum (? ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki (ekki svo ég muni..) ( ) verið handtekin/n ( ) farið á blint stefnumót (x) logið að vini/vinkonu (x) skrópað í skólanum ( ) horft á einhvern deyja ( ) farið til Canada ( ) farið til Mexico (x) ferðast í flugvél (x) kveikt í þér viljandi (bara uppá djókið samt :P) ( ) borðað sushi ( ) farið á sjóskíði ( ) farið á skíði (sem sagt í snjó) ( x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu (x) farið á tónleika (x) tekið verkjalyf (x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna (x) legið á bakinu úti og horft á skýin (x) búið til snjóengil ( ) haldið kaffiboð (x ) flogið flugdreka (x) byggt sandkastala (x) hoppað í pollum (x) farið í "tískuleik" (x) hoppað í laufblaðahrúgu (x) rennt þér á sleða (x) svindlað í leik (x) verið einmana (x) sofnað í vinnunni/skólanum (x) notað falsað skilríki (x) horft á sólarlagið (x) fundið jarðskjálfta (x) sofið undir berum himni (x) verið kitluð/kitlaður (x) verið rænd/rændur (x) verið misskilin/n (x) klappað hreindýri/geit/kengúru ( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi ( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla ( ) lent í bílslysi (ekki nema bara pínku árekstrar) ( ) verið með spangir/góm (x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni (x)borðað líter af ís á einu kvöldi (x) fengið deja vu (x) dansað í tunglskininu (x) fundist þú líta vel út (x) verið vitni að glæp (x) efast um að hjartað segði þér rétt til ( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu) ( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni (x) verið týnd/ur (x) synt í sjónum ( ) fundist þú vera að deyja (x) grátið þig í svefn (x) farið í löggu og bófa leik (x) litað nýlega með vaxlitum (x) sungið í karaókí (x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (x) hringt símahrekk (x)hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (x) stungið út tungunni til að ná snjókorni (x) dansað í rigningunni ( ) skrifað bréf til jólasveinsins (x) verið kysst/ur undir mistilteini (x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (x) blásið sápukúlur ( ) kveikt bál á ströndinni ( x) komið óboðin/n í partý ( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í (x) farið á rúlluskauta/línuskauta (x) hefur einhver óska þinna ræst ( ) farið í fallhlífastökk ( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (x) pissað úti
Lag bloggsins: Peruvian skies - Dream theater (BEST!)
Posted at 11:22 pm by
Permalink
Wednesday, March 22, 2006
Vildi bara fá að kvarta svolítið útaf helv... stærðfræðikennaranum mínum sem ákveður að skrifa það sem við eigum að læra fyrir próf í djöf... Power Point sem ég er ekki fokki... með!
Svo vil ég líka deila með ykkur yndislegum fréttum sem ég var að fá. Fyrrverandi kærastinn minn, þekktur fyrir fíflalæti og rónaskap, hefur ákveðið að byrja að ganga til kirkju á hverjum sunnudegi og verða aktífur í kirkjustörfum!:D HAH! Hápunktur dagsins skal ég segja ykkur!!:D
En ég votta honum virðingu mína fyrir að breyta lífstíl sínum og ganga til móts við ljósið. Amen.
En í alvöru. Til hamingju með þetta væni minn. (Þessi setning var gjörsamlega tilgangslaus þar sem að drengurinn talar ekki snefil í íslensku. En allavega...)
Góða nótt!
Og já.. ég veit að það er fullt af fólki að lesa þetta.. þannig að drullist til að kommenta elskurnar ;*
Lag bloggsins: Dead in the water - David Gray
Posted at 10:28 pm by
Permalink
Monday, March 20, 2006
Frumsýning og skemmtilegheit
Jæja, er ekki komin tími á smá blogg?
Ætli þetta verð ekki bara svona "hvaðvarégaðgeraumhelgina" blogg...
Á föstudaginn var náttúrlega frumsýning á MH leikritinu og svo frumsýningarpartý eftir það!:D Það var ágætt. Greyið Stebba fékk sammt eitthvað þvílíkt mígreniskast rétt áður en við ætluðum að fara og sofnaði bara í rúminu mínu. Svo þegar ég dröslaðist heim um sex leitið um morguninn þorði ég ekki að sofna í rúminu við hræðslu um að hún mundi æla á mig eða eitthvað þannig að ég svaf á ca. centimetra þykkri yfirdýnu með rúmteppið yfir mér alla nóttina (eða það sem eftir var af henni...). Af einhverjum ástæðum svaf ég ótrúlega vel og vaknaði hress klukkan hálf ellefu morguninn eftir! Ég hef nú ýmsar kenningar á af hverju ég svaf svona vel...
Svo má ekki gleyma að Stebba átti afmæli á sunnudaginn:D og hélt upp á það með smá get together. Voða kósí.:) Svo á leiðinni heim plataði Kristjana mig að fara í annað afmælispartý þar sem að ég át um það bil öll vínberin og fór svo heim (svona næstum).
OMFG! o.O
Svo er bara engin leiklist fyrr en á fimmtudaginn og maður veit varla hvað maður á að gera í öllu þessu fríi! Maður ætti samt að vera vinna upp allt sem maður hefur farið aftur í... Er gjörsamlega að kúka á mig í stærðfræðinni (I blame the teacher :P).
Hehe...
Mússímússí >.<
Svo var maður að frétta að Motörhead væri að koma á Reykjavík rock í sumar. Er ekki málið að skella sér þangað?:)
Lag bloggsins: Under the weeping moon - Opeth
Djöfull er þetta litríkt blogg :P
Posted at 09:58 pm by
Permalink
Monday, March 13, 2006
Núverandi Tími: 23:59
Núverandi Dagur: Sunnudagur.. Mánudagur eftir mínútu.-_-
Núverandi föt: sokkar, buxur, hlírabolur..
Núverandi Undirföt: Bara nærbuxur, svartar.. þarf ekki brjóstahaldara í þessum bol (innbyggður skilurðu :P)
Núverandi Skap: Bara góð.. þreytt bara
Núverandi hár: Tagl
Núverandi Bók: Var að byrja á Fótataki tímans eftir.. uh.. Krístínu Loftsdóttur held ég.. Svo er ég líka að lesa ræður eftir Thomas Sankara.. Yay!
Núverandi áhyggjur: Ókláruð heimavinna og ritgerðir.. svo svona hlutir sem ég nenni ekkert að vera að tjá mig um hér.
Núverandi Texti á heilanum: Brick shithouse með Placebo.. ekkert rosalega mikill texti samt...
Núverandi farði: Maskari og eye-liner
Núverandi desktop mynd: Gasalega flott mynd sem ég gerði á tvem mínútum í Paint. Rangeigður spítukall í röndóttum bol að glápa á einhverja svífandi græna kúlu.. Tilgangur? Nei.
Núverandi áætlun fyrir helgina: Jah.. helgin var eiginlega að klárast.. Ekkert planað fyrir næstu helgi.:P
Núverandi blótyrði: Þau eru mörg og misgróf...:)
Núverandi vonbrygði: Bíómyndin sem ég var á áðan! The new world.
Núverandi skemmtun: ... Af hverju heldurðu að ég sé að gera þetta?
Núverandi manneskjur sem ég er að tala við á msn: Alexander svíi. :)
Núverandi manneskja sem ég forðast: Engin sérstök held ég..
Núverandi pirringur: Busy dagur á morgun og ég er ekki farin að sofa.
Núverandi lykt: Tölvuryk?
Núverandi hlutur sem ég ætti að vera að gera: Sofa.. eða læra.
Núverandi uppáhalds leikari: Uh...
Núverandi uppáhalds leikkona: Eh..
Núverandi uppáhalds matur: Enginn.. Finnst matur ekkert sérstaklega góður þessa dagana.
Núverandi besti drykkur: Vatn bara :)
Núverandi Söfnun: Naflakusk úr hömstrum.
Núverandi Kækur: Stærsti kækurinn minn er ábyggilega að lyfta einni augabrún í einu þegar ég er að hlusta á eitthvað merkilegt (eða ómerkilegt).
Núverandi löngun: Að vinna sjálfboðastarf fyrir eitthvað gott málefni.Og svo náttúrlega að útrýma mannkyninu. :)
Núverandi tónlist: Tónlist eftir Charles Manson, bara svona ganni. Haha.. hljómar svolítið krípí við svarið á síðustu spurningu.:P En ég er ósköp saklaus...
Núverandi naglalakk: Ekkert.
Núverandi Sokkar: Venjulegir, svartir.
Núverandi Besti vinur: Þeir eru nokkrir.
Núverandi Besta vinkona: Líka nokkrar...
Núverandi ást: Bara allir sem mér þykir vænt um. :)
Posted at 03:33 pm by
Permalink
Saturday, March 11, 2006
Haha.. Ég er ekki að gera mig í þessu bloggi mínu. Hef heldur bara eiginlega ekki haft neinn tíma til að blogga síðustu daga. Hef verið á leiklistaræfingum alla daga og öll kvöld síðustu viku og þess á milli hef ég verið að læra. Gamanaðessu. Svo hef ég eiginlega ekkert að blogga um.. nema leiklist.. og ég nenni því ekki.
ojæja..
Svo vill svo skemmtilega til að ég leit svona út fyrir nákvæmlega ári, viku og einum degi síðan. Gat í nefinu og alles. Skemmtilegt nokk.
 Maður ætti kannski að fá sér svoleiðis aftur?
Svo bara partý í kveld?
lag bloggsins: Rivfander - Finntroll
Posted at 06:40 pm by
Permalink
Friday, March 03, 2006
Haha! Ég var strax búin að gleyma þessu bloggi. Og asnalegast er að ég er ekki búin að segja neinum frá þessari síðu...
Jæja, það lítur út fyrir að ég verði veik þessa helgi líka (önnur helgin í röð!) og sjúgi upp í nefið á meðan aðrir djamma af sér rassgatið. Helvítis...
Ég fór ekki í skólann í gær, og missti þarmeð af tveim prófum, en svo leið mér betur og dröslaði mér á leiklistaræfingu þar sem ég hélt mér uppi á kexinu hennar Stebbu og íbúfeni í heilan sex og hálfan tíma! Þótt ótrúlegt megi virðast þá var ég bara ansi hress þegar ég kom heim og gat ekki sofnað þannig að ég tók nett brjálæðiskast með Apocalyptica í hátölurunum og sofnaði svo sæl undir ljúfum tónum frá Bob Marley. Vaknaði svo ekki jafn hress í morgun og ekki batnaði skapið þegar ég var minnt á að ég átti að passa tvo brjálaða frændur mína og litlabróður um kvöldið á meðan að mamma, pabbi, frænka mín og amma ætluðu á djammið (ok, leikhús, en samt..). En það reddaðist alveg því ég þurfti bara að lemja þá svolítið hér og þar, troða snakki upp í munninn á þeim og henda PS2 fjarstýringum í fangið á þeim og þar sitja þeir enn, stara stoned á skjáinn. Það er nú meira hvað þessir tölvuleikir hafa góð áhrif á börn.
Sjálf sofnaði ég bara í sófanum og dreymdi vægast sagt skrítinn draum... Sko, mig dreymdi að ég væri að passa þrjár yndislega góðar stelpur (nei, ég er engin kvenremba og ég held alls ekki að stelpur séu eitthvað betri en strákar, draumurinn var bara svona). Þær voru allar í bleikum kjólum og léku sér hljóðlaust og fallega á stofugólfinu á meðan ég dottaði í sófanum, en svo allt í einu breyttust þær í svona Silvía Nótt wannabe's, svona eins og þær sem fylltu göturnar á öskudeginum, og urðu vægast sagt algjörar tíkur! Þarna hljóp ég um í angist minni og reyndi að halda Silvíunum í skefjum á meðan þær rústuðu stofunni og fylltu herbergið með orðum eins og "skilurru" og "ógisslega töff". Hræðilegur draumur.
Það er nú meira hvað maður getur dreymt skrítna drauma þegar maður er með hita. En þegar ég vaknaði var ég bara fegin að hafa litlu ólátabelgina í tölvunni í staðin fyrir þessar hræðilegu stelpur, svo það var kannski einhver tilgangur með þessum draumi eftir allt saman. (Ok ég er hætt að reyna að vera gáfuleg...)
Svo verð ég að fara að gera eitthvað í þessari síðu, í augnablikinu er hún ein ljótasta síða sem ég hef séð. En ég nenni því bara ekki núna. Held ég fari bara að dotta fyrir framan sjónvarpið eða eitthvað.. -_-
Posted at 08:36 pm by
Permalink
Wednesday, March 01, 2006
Til að fagna því að ég sé loksins komin með netið eftir sirka hálfs árs bið og vegna þess að ég hef ekkert betra við tímann að gera þá ákvað ég að fá mér bloggsíðu. Svo er bara spurning hvað maður endist lengi í þetta skiptið. Annars veit ég ekkert hvað ég var að pæla með að kalla þessa síðu cleanex, það var bara fyrsta orðið sem kom upp í hausinn á mér held ég. Er ekki cleanex annars eitthvað fyrirtæki sem framleiðir hreinsivörur? Eða voru það kannski ryksugur?
Allavega, ég sé fram á að eiða restinni af vikunni í rúminu með hita og kvef, vona bara að ég missi ekki gjörsamlega af helginni, ég er ansi hrædd um að ég deyji úr þunglyndi ef svo fer.
Jæja, hausinn á mér er að springa.. held ég fari bara að sofa eða eitthvað. Svo geri ég kannski eitthvað við þessa síðu á morgun..
Posted at 02:26 pm by
Permalink
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
|
 |